Monday, April 4, 2011

Verslað!

Þá dröslaðis ég með mömmu i Babysam í dag. Mamma fór eins og þruma um búðina og ég átti afskaplega erfitt með að fylgja henni eftir. "Nei, við kaupum þetta ekki! Þetta er hættulegt", "Helduru að þetta sé ekki hættulegt" "Jiii, þetta lítur út fyrir að vera hættulegt". Já, hún er varkár hún móðir mín.

Við (hún) keyptum fullt af hlutum. Hún leyfði sér meira að segja að kaupa gjöfina frá pabba og fjölskyldu. Sem er rosalega flottur "kombi"vagn. S.s. barnavagn sem hægt er að breyta í kerru þegar að því kemur. Vagninn er lítill og léttur og það mun ekki vera neitt mál fyrir mig að bera hann. Sjibbí!

Hér koma myndir af stóru hlutunum sem keyptir voru í dag:

Fallegi, fjólublái vagninn:

Image and video hosting by TinyPic

Babybjörn stóll sem ruggar:

Image and video hosting by TinyPic

Mamma fann svo sængurföt og kant fyrir rúmmið og féll fyrir því. Ég mótmælti þó og sagðist ekki vera alltof hrifin af svona "hot pink". Hún var fljót að svara því "Ja, en þetta er ekki fyrir þig". Svo það var keypt:

Image and video hosting by TinyPic

Svo féll mamma fyrir enn einum hlutnum. Leikteppi í æpandi appelsínugulum:

Image and video hosting by TinyPic

Ég er ekkert smá ánægð með allt sem við fengum í dag! Það er rosalegur léttir að það séu komnir svo margir hlutir í hús.

Og takk fyrir gjafirnar mamma og pabbi!

Þangað til næst,

Elísabet

2 comments:

  1. Ohh það fer að líða að þessu hjá okkur Beta :) Vagninn er æðislegur og allt hitt skemmtilega litríkt :) Fíla það að þú sért ekki með allt í væmnum bleikum pastel tónum ( fékk upp í kok og meika ekki enn beibíbleikan eftir að stelpurnar fæddust )!!!

    Ég hlakka svo ekkert smá til að hitta ykkur mæðgur í lok sumars þegar við stormum til Sönderborgar í heimsókn :)


    Kv. Birgitta

    ReplyDelete