Saturday, September 3, 2011

Emma 3 og hálfs mánaða!

Já, ég verð víst að vera betri í að muna eftir þessari síðu! Emma stækkar og stækkar og er núna orðin 68 cm og 6,14 kg. Svo hún er löng og grönn.

Hún er byrjuð að spjalla og spjalla og spjalla! Og hér kemur smá video af litlu slúðurkellingunni okkar:

Monday, August 15, 2011

Emma 3 mánaða!

Jæææææja, tími kominn að ég sinni þessari síðu aðeins?

Maginn á Emmu verður betri og betri. Hún kúkar núna sjálf í flestum tilfellum og það er næstum ekki kvartað á meðan. Þó koma dagar sem hún er verri, en þeir eru fáir!

Emma varð 3 mánaða í gær og tók ég upp lítið myndband af henni. Hún er byrjuð að spjalla og spjalla og já, spjalla!

Monday, July 4, 2011

Fleiri myndir og smá fréttir!

Emma er algjört æði! Ég gæti knúsað og kreist hana allan liðlangan daginn! Hún hefur verið svo góð í gær og dag, ekkert vesen á maganum hennar! Hún hefur sofið 5-6 tíma í einu á nóttinni og svo fengið að drekka og skipt á bleyju og þar á eftir sefur hún í 3 tíma! Við erum svo sannarlega úthvíldir foreldrar!

Við erum byrjuð að venja hana á að sofa úti í vagni og það gengur mjög vel. Í gær var hún úti í 50 mínútur. Ég þurfti þó að rétta henni snuðið nokkrum sinnum, allt fer í panik þegar hún missir snuðið. Í dag svaf hún í næstum 3 tíma! 3 tíma!!! Í byrjun var svolítið vesen, missti snuðið nokkrum sinnum og svo þufti ég að vagga henni, en hún svaf í svona 10-15 mínútur í einu. Svo skipti ég á einni bleyju og þar á eftir svaf hún í klukkutíma án þess að vakna! KLUKKUTÍMA! Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við sjálfan mig. Mér leiddist bara.

Nokkrar myndir af sætustu stelpunni sem hlakkar til að fá heimsókn frá Íslandi:

Liggja með pabba er uppáhalds:
Image and video hosting by TinyPic

Óróinn fyrir ofan skiptiborðið er æði. Hann fær bros í hvert skipti! Mamma og pabbi þurfa hinsvegar að vinna fyrir brosum!
Image and video hosting by TinyPic

Veit ekki alveg hvaða svipur þetta er:
Image and video hosting by TinyPic

Það er svo gaman á skiptiborðinu:
Image and video hosting by TinyPic

Monday, June 27, 2011

Wednesday, June 22, 2011

Emma ostra!

Emma var að máta hatt í dag sem hún fékk frá ömmu sinni og hún líkist ostrunum úr Lísu í undralandi ekkert smá! Ég öskraði úr hlátri!

Image and video hosting by TinyPic