Thursday, April 7, 2011

36 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Ég er riiiiiisi. Bumban virðist ætla að tvöfaldast á síðasta sprettinum. Ég er orðin ansi þung á mér og auðveldustu hlutir fá mig til þess að verða móða og másandi. Jæja, sem betur fer er ekki mikið eftir.

Við eigum alla hlutina sem okkur vantar nema bílstólinn. Hann fáum við í Þýskalandi fyrir skít og kanel! Frábært að búa rétt hjá landamærunum. Það er svo gott að þessir hlutir séu komnir í hús, mér finnst ég geta andað mun léttar. Ég verð þreyttari og þreyttari með hverjum deginum og ég veit að ég mun ekki geta skroppið í búðir eftir viku.

Stelpan er enn hress en ég finn að hún á erfiðara með að hreyfa sig. Það er auðvitað ekki mikið pláss eftir. Ég finn hana aðeins reyna að laga sig og svo hikstar hún voða mikið. Ætli við séum ekki báðar jafn spenntar fyrir því að hún komi út... tja, hún veit svosem ekki að hún kemur út.

Núna er ein vika í að hún geti fæðst án þess að vera kölluð fyrirburi. Ég vona samt að hún verði inni aðeins lengur. Hún þarf ekki að bíða til 40 viku... en gjarnan til viku 39. Svo ég geti nú undirbúið mig andlega.

Núna ætla ég að fara elda mat fyrir okkur skötuhjúin. Það eru kjúklingabringur í matinn og mig langar ekkert í það, en ég get víst ekki borðað súkkulaði í öll mál.

Þangað til næst,

Elísabet

No comments:

Post a Comment