Jæja, þá er ég komin 38 vikur. Og ég er alveg tilbúin til þess að stelpan láti sjá sig. Ég nenni ekki, nenni ekki, nenni eeeekki að vera ófrísk lengur! Mér er byrjað að líða mjög óþæginlega. Sérstaklega í þessum hita sem er hérna í Danaveldi! 26 stiga hiti fer ekki vel í kasólétta konu!
Var hjá ljósmóður í gær og hún segir að stelpuskottan er nú 3300 grömm. Svo hún er orðin ágætlega stór. Hún giskaði á að stelpan myndi vera 3700 grömm til 3900 grömm. Stelpan er s.s. í mjög eðlilegri stærð. Ekkert skrímsla barn en heldur ekkert písl!
Ég er byrjuð að vera slæm í maganum og er með rosalega niðurgang. Það er merki um að það sé ekki mikið eftir og líkaminn sé að hreinsa sig. Ég veit ekki hvort eitthvað gerist eftir klukkutíma eða 3 vikur. En er alveg rosalega spennt. Thomas er líka spenntur og hlakkar til að hitta dóttur sína.
Allt er tandurhreint hérna heima en ég finn alltaf eitthvað að þrífa. Sagði eitthver hreiðurgerð?
Þangað til næst,
Elísabet
No comments:
Post a Comment