Thursday, April 28, 2011

39 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Aðeins ein vika í settan dag! Spennan er ótrúleg! Ég má varla fá smá vindverki án þess að halda að þetta séu hríðar.

Líkaminn minn keyrir á núllinu. Ég reyni að gera mitt besta hérna heima en ég verð svo fljótt þreytt og svo er ég byrjuð að fá illt í bakið við minnstu verk. Thomas hjálpar þó mikið, en það er bara erfitt að gera mér til geðs í augnablikinu þar sem ég er orðin hreingerningarbrjálæðingur.

Tilfiningarnar eru mjög blandaðar þessa dagana. Stundum er ég kúl og köld og held að ég geti bara sest bak við næsta tré og fætt stelpuna sjálf. Svo get ég verið dauðhrædd við fæðinguna og vill helst fá allt verkjastillandi sem finnst. Það kemur líka fyrir að ég er dauðhrædd við að verða mamma. Ég er hrædd um að missa barnið, ég hrædd um að ábyrgðin sé of mikil og ég er dauðhrædd um að barninu eigi ekki eftir að líka við mig. Svo hverfa allar þessar tilfiningar og mig dreymir dagdrauma um brjóstagjöf, lítil föt, göngutúra með barnavagnin og barnahlátur. Það er nú meira hvað biðin getur verið stressandi! Ég vil bara drífa þetta af!

Jæja, ég vona að stelpan láti sjá sig bráðum. Ég vil amk EKKI fara yfir tíman! Þá fyrst verð ég brjáluð.

Þangað til næst,

Elísabet

Thursday, April 21, 2011

38 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Jæja, þá er ég komin 38 vikur. Og ég er alveg tilbúin til þess að stelpan láti sjá sig. Ég nenni ekki, nenni ekki, nenni eeeekki að vera ófrísk lengur! Mér er byrjað að líða mjög óþæginlega. Sérstaklega í þessum hita sem er hérna í Danaveldi! 26 stiga hiti fer ekki vel í kasólétta konu!

Var hjá ljósmóður í gær og hún segir að stelpuskottan er nú 3300 grömm. Svo hún er orðin ágætlega stór. Hún giskaði á að stelpan myndi vera 3700 grömm til 3900 grömm. Stelpan er s.s. í mjög eðlilegri stærð. Ekkert skrímsla barn en heldur ekkert písl!

Ég er byrjuð að vera slæm í maganum og er með rosalega niðurgang. Það er merki um að það sé ekki mikið eftir og líkaminn sé að hreinsa sig. Ég veit ekki hvort eitthvað gerist eftir klukkutíma eða 3 vikur. En er alveg rosalega spennt. Thomas er líka spenntur og hlakkar til að hitta dóttur sína.

Allt er tandurhreint hérna heima en ég finn alltaf eitthvað að þrífa. Sagði eitthver hreiðurgerð?

Þangað til næst,

Elísabet

Saturday, April 16, 2011

Barnaherbergið

Þá er barnaherbergið tilbúið!!! Ég er hoppandi kát yfir að það sé bara ALLT að smella saman og stelpurófan getur bara mætt hvenær sem er þar sem við eru REDDÍ!

Fyrir myndin, mamma og Thomas að mála:

Image and video hosting by TinyPic

Herbergið séð frá hurðinni:

Image and video hosting by TinyPic

Herbergið séð frá glugganum:

Image and video hosting by TinyPic

Aftur:

Image and video hosting by TinyPic

Herbergið séð frá rimlarúmminu:

Image and video hosting by TinyPic

Er þetta ekki bara flottasta barnaherbergið sem þið hafið séð?!

Thursday, April 14, 2011

37 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Naflinn stendur út! Ég er búin að bíða eftir því þó nokkuð lengi þar sem hann hefur hagað sér undarlega síðasta mánuðinn. Hann byrjaði á því að vera rosalega mjúkur, svo varð hann strekktur og svo varð hann hálf gulur.... og nú stendur hann út!

Líkami minn er byrjaður að gefa merki um að meðgangan fer að líða undir lok. Þá meina ég ekki að ég sé að fara eiga einn tveir og bingó, þessar 3 vikur sem eftir eru fá örugglega að líða. En bara að ég sé kominn á lokaspettinn. Ég verð voða fljótt þreytt eftir smá hreyfingu. Bara það að hengja upp þvott gefur mér væga "túr"verki í magan og bakið. Og ég finn það líka á mér að ég þarf að fara slaka meira á. Ég er byrjuð að geta sofið aðeins betur, eins og líkaminn viti að hann þurfi á hvíld að halda.

Stelpurollan bætir á sig sirka 30 grömmum á dag. Vávv, ég ætla að halda mig frá vigtinni á þessum síðustu vikum. Hún er rólegri, enda verður plássið minna og minna. En hún heldur áfram að elska að grafa tærnar undir rifbeinin mín. Svo hikstar hún daglega svo maginn á mér hoppar.

Ég er byrjuð að undirbúa spítalaförina. Ég er búin að pakka í tösku fyrir stelpuna. Fötin sem hún á að fara í heim, snuð, bangsa, taubleyjur og fleira. Núna þarf ég bara að pakka í tösku fyrir mig og Thomas. Eða allavegana pakka því sem hægt er að pakka núna. Alltaf gott að vera tilbúin!

Ég ætla að segja þetta gott, enda er ég á leiðinni upp í rúm. Er svo rosalega þreytt alltaf!

Þangað til næst,

Elísabet

Thursday, April 7, 2011

36 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Ég er riiiiiisi. Bumban virðist ætla að tvöfaldast á síðasta sprettinum. Ég er orðin ansi þung á mér og auðveldustu hlutir fá mig til þess að verða móða og másandi. Jæja, sem betur fer er ekki mikið eftir.

Við eigum alla hlutina sem okkur vantar nema bílstólinn. Hann fáum við í Þýskalandi fyrir skít og kanel! Frábært að búa rétt hjá landamærunum. Það er svo gott að þessir hlutir séu komnir í hús, mér finnst ég geta andað mun léttar. Ég verð þreyttari og þreyttari með hverjum deginum og ég veit að ég mun ekki geta skroppið í búðir eftir viku.

Stelpan er enn hress en ég finn að hún á erfiðara með að hreyfa sig. Það er auðvitað ekki mikið pláss eftir. Ég finn hana aðeins reyna að laga sig og svo hikstar hún voða mikið. Ætli við séum ekki báðar jafn spenntar fyrir því að hún komi út... tja, hún veit svosem ekki að hún kemur út.

Núna er ein vika í að hún geti fæðst án þess að vera kölluð fyrirburi. Ég vona samt að hún verði inni aðeins lengur. Hún þarf ekki að bíða til 40 viku... en gjarnan til viku 39. Svo ég geti nú undirbúið mig andlega.

Núna ætla ég að fara elda mat fyrir okkur skötuhjúin. Það eru kjúklingabringur í matinn og mig langar ekkert í það, en ég get víst ekki borðað súkkulaði í öll mál.

Þangað til næst,

Elísabet

Monday, April 4, 2011

Verslað!

Þá dröslaðis ég með mömmu i Babysam í dag. Mamma fór eins og þruma um búðina og ég átti afskaplega erfitt með að fylgja henni eftir. "Nei, við kaupum þetta ekki! Þetta er hættulegt", "Helduru að þetta sé ekki hættulegt" "Jiii, þetta lítur út fyrir að vera hættulegt". Já, hún er varkár hún móðir mín.

Við (hún) keyptum fullt af hlutum. Hún leyfði sér meira að segja að kaupa gjöfina frá pabba og fjölskyldu. Sem er rosalega flottur "kombi"vagn. S.s. barnavagn sem hægt er að breyta í kerru þegar að því kemur. Vagninn er lítill og léttur og það mun ekki vera neitt mál fyrir mig að bera hann. Sjibbí!

Hér koma myndir af stóru hlutunum sem keyptir voru í dag:

Fallegi, fjólublái vagninn:

Image and video hosting by TinyPic

Babybjörn stóll sem ruggar:

Image and video hosting by TinyPic

Mamma fann svo sængurföt og kant fyrir rúmmið og féll fyrir því. Ég mótmælti þó og sagðist ekki vera alltof hrifin af svona "hot pink". Hún var fljót að svara því "Ja, en þetta er ekki fyrir þig". Svo það var keypt:

Image and video hosting by TinyPic

Svo féll mamma fyrir enn einum hlutnum. Leikteppi í æpandi appelsínugulum:

Image and video hosting by TinyPic

Ég er ekkert smá ánægð með allt sem við fengum í dag! Það er rosalegur léttir að það séu komnir svo margir hlutir í hús.

Og takk fyrir gjafirnar mamma og pabbi!

Þangað til næst,

Elísabet