Thursday, December 30, 2010

22 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Ég er hætt að segja "Já, nú held ég að ég sé bara hætt að æla", því ég æli alltaf eftir það. Það er alveg ótrúlegt að í hvert skipti sem ég held að ég sé hætt... og nefni það, þá byrjar ballið aftur. Svo, þið fáið ekki að vita ef ég hætti að æla... því ég verð svo hrædd við að byrja að æla aftur.

Ég stækka og stækka og finn meira fyrir krílinu með hverjum deginum. Mamma og ég vorum í wellness í dag (voða fansí sundlaug) og var hún að uppnefna barnið. Svo þegar hún setti höndina á magan á mér var sparkað rækilega í hana til þess að refsa henni fyrir uppnefnin.

En já, við erum semsagt á fullu í nafnaleit. Við erum búin að finna 6 nöfn sem við erum rosalega skotin í. Gæti vel verið að það breytist eitthvað seinna meir en ég ætla allavegana að deila því sem við höfum fundið fram til þessa:

Strákanöfn:
Lúkas
Viktor
Benjamín

Stelpunöfn:
Freyja
Natalía
Emma

Við erum nokkuð viss um hvaða drengjanafn við veljum. En við getum ekki orðið almennilega sammála um stelpunöfnin. Okkur finnst öll nöfnin falleg en eigum hvor fyrir sig okkar uppáhald. Það verður spennandi að sjá hver vinnur ef þetta er stelpa. Mig grunar þó að það verði frekjan ég.

Þetta er auðvitað bara top listinn í augnablikinu og viljum við benda fólki á að þeim er meira en velkomið að koma með fleiri hugmyndir. Við erum ekki ein af þeim sem vilja ekki að fólk skipti sér að. Við viljum gjarnan heyra fleiri nöfn!

Það er rosalega erfitt að finna nöfn. Mér finnst ég alltaf þekkja eða hafa þekkt eitthvern leiðinlegan sem hét þetta. Það er búið að eyðileggja mörg falleg nöfn bara af því að eitthverjir kjánar bera þau.

Nú fer að styttast í síðustu tvö prófin. Eitt er munnlegt enskupróf sem ég er ekkert stressuð fyrir og svo annað munnlegt dönskupróf... sem ég er mjög svo stressuð fyrir. Um leið og gamlárskvöld er búið mun ég sökkva nefinu í bækur og læra, læra og læra!

Ég ætla að segja þetta gott í bili. Ég óska öllum gleðilegs nýrs árs og þakka fyrir það liðna.

Þangað til næst,

Elísabet

Thursday, December 23, 2010

21 vika!

Image and video hosting by TinyPic

Þá er ég rúmlega hálfnuð og jólin á morgun! Allt að gerast bara! Ég ákvað að bumbumynd vikunnar myndi vera ber bumba. Mér var sagt að taka nokkrar þannig áður en slitförin láta sjá sig. Já ég veit, ég veit, það er ekkert víst að ég fái þau. En miða við það að ég er enn ælandi og með gringarglyðnun... þá held ég að heppnin sé ekki með mér í þessari meðgöngu.

Það snjóar og snjóar hér í baunalandi og við Thomas bara búin að halda okkur heima í dag. Ég bakaði ársbirgðir af kanelsnúðum í gær og erum við bara búin að vera á náttfötunum að maula þá í allan dag. Ég nennti ekki að taka til í dag (það var planið) en þar sem það var ekkert svakalega mikið drasl ákvað ég að leyfa mér að vera löt. Við eyðum hvort eð er jólunum hjá mömmu, og ég veit að hún er búin að taka til hjá sér.

Mér líður mjög vel bara. Grindin angrar mig ekki eins mikið eftir að ég er byrjuð að gera þá hluti sem hjálpa. Gringaræfingar, leggjast niður nokkrum sinnum á dag, taka tröppur eina í einu, ekki ryksuga o.s.frv. Mér er enn flökur en ég æli ekki eins oft og ég er eiginlega bara hætt að pæla í þessu, er bara orðin vön þessu. Ég er búin að þyngjast um 2 kg (vigtaði mig í gær, gæti hafa þyngst vegna ofáts af kanelsnúðum)og er mjög sátt við það. 8 kg eftir og ætla ég að reyna að geyma a.m.k. 4 þeirra til síðasta mánaðarins. Hef heyrt að það er þá sem maður þyngist sem mest.

Barnið er enn fjörugt en er ekki enn byrjað að angra móður sína þar sem spörkin eru varla spörk. Ég er byrjað að geta "fengið" það til þess að hreyfa sig. Eða ég held það allavegana. Ég legst á bakið og set hendurnar á magan... og svo sendi ég sterkar hugsanir til barnsins að nú eigi það að hreyfa sig. Og ég sver að þetta virkar næstum alltaf. Gæti vel verið tilviljanir... en skemmtilegt er það!

Við fengum gefins barnavagn af bróður Thomas og konunni hans. Þau keyptu notaðan barnavagn þegar hún var ólétt af fyrstu dóttur þeirra en henni fannst hann ekki flottur á litinn svo hann var settur upp á loft. Eru liðin 3 ár síðan og fannst þeim tími til kominn að losa sig við hann. Og þar sem ég var ólétt fannst þeim réttast að spyrja okkur hvort við vildum hann..... uhhh HELL YES!!! Ókeypis barnavagn?! Já takk! Þarna spöruðum við 2000 kr danskar! Jæja, vagninn er kannski ekkert fallegur á litinn en liturinn angrar okkur ekki neitt. Hér kemur mynd af sportvagninum:

Image and video hosting by TinyPic

Ég ætla að segja þetta gott og óska ykkur öllum gleðilegra jóla. Ég spjalla nú við aðal liðið á morgunn í símann og heyri í þeim jólahljóðið.

Þangað til næst,

Elísabet

Thursday, December 16, 2010

20 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Þá er ég hálfnuð! Húrra, húrra, húúúúrraaaaa! Allt í einu er eins og tíminn hafi flogið af stað, en samt finnst mér ótrúlega ósanngjarnt að ég þurfi að bíða í 20 vikur í viðbót.

Ég var hjá lækninum mínum um daginn vegna þess hversu illt mér hefur verið í mjöðmunum. Og síðustu daga hefur mér verið svo illt í rófubeininu að ég gæti grátið þegar ég stend upp eða sest niður. Læknirinn sagði að ég væri því miður með gringarglyðnun. Sem er ömurlegast af öllu ömurlega en ágætt að það sé komið á hreint svo ég geti gert mitt besta til þess að halda mér í gangi.

Að vera með grindarglyðnun er mjög sársaukafullt en ég get haldið þessu ágætlega í skefjum með að passa að reyna ekki of mikið á mig, má ekki ryksuga og svo geri ég sérstakar æfingar fyrir grindina. Ég á að fara til sjúkraþjálfara en við verðum að skoða hvort það sé efni á því. Ég er mjög jákvæð og ætla að fara mjög vel með mig næstu 20 vikurnar svo að ég verði nú ekki rúmliggjandi.

Barnið er ótrúlega fjörugt og Thomas búin að finna fyrir potunum nokkrum sinnum núna. Ég er enn að venjast hversu mikla orku krílið hefur þar sem það getur sparkað og potað í nokkrar mínútur í einu núna. Mjög óheppinlegt að vera í miðju alvarlegu samtali þegar barnið byrjar... ég get ekki annað en brosið þegar það fer í gang. Mér finnst þetta ennþá svo fyndið.

Við Thomas erum búin í prófum í bili. Það eru nokkur eftir í janúar en akkúrat núna erum við komin í jólafrí og ætlum ekki að kíkja í bók fyrr en eftir 24 desember. Það hefur gengið vel hingað til en engar einkunnir eru komnar í hús. Við bíðum spennt eftir að sjá hvor okkar fær hærri einkunnir.

Það er allt orðið rosalega jólalegt á þessum bæ og á kvöldin finnst mér ekkert betra en að liggja í sófanum, kela við kisu á meðan það er kveikt á fullt af kertum og jólaljósum.

Þangað til næst,

Elísabet

Monday, December 13, 2010

Kong fú barn!

Spriklin í barninu verða sterkari og sterkari með hverjum deginum. Og á laugardaginn voru þau svo sterk að ég fann fyrir þeim í lófanum á mér þegar ég lagði höndina á magan. Thomas var því miður ekki heima.

Í gær vorum við í mat hjá foreldrunum hans Thomas. Eftir að við vorum búin að borða á okkur gat lá ég eins og klessa í sófanum. Allt í einu byrjar allt að gerast í maganum á mér og ég kalla á Thomas að koma eins og skot. Hann setti höndina á magan og fann fyrir tveimur "potum". Svo hann er búin að finna fyrir krílinu líka! Jibbí jeijj!

Annars er ég orðin ansi slæm í grindinni. Og það er ótrúlega vont að standa upp eða setjast. Ég vil helst bara vera standandi eða bara vera sitjandi. Ég ætla að hringja í lækninn minn þegar ég er búin að í prófinu á morgun. Mér finnst ég bara ekki hafa pláss fyrir það núna þar sem ég er (á að vera) að læra. Óléttuheilinn í mér rúmar ekki meira en eitt í einu.

Ég er alltaf að upplifa nýja og nýja hluti við þessa óléttu. Þetta er alveg stórmerkilegt og ég hugsa ekki um annað. Og ef það tekst að ég nái að leiða hugan að eitthverju öðru þá byrjar barnið að sparka.

Ég get alls ekki legið á maganum núna. Áður fyrr upplifði ég bara smá óþægindi en núna er þetta orðið virkilega óþæginlegt. Ég prófa mig samt áfram með alls konar púðum og undarlegum stellingum. En ég verð að sætta mig við þetta, ég mun ekki sofa á maganum næstu 20 vikurnar.

Þetta voru bara smá fréttir! Annars líður okkur bara vel og okkur hlakkar til jólana.

Þangað til næst,

Elísabet.

Thursday, December 9, 2010

19 vikur og fleira!

Image and video hosting by TinyPic

Jæja! Bumban stækkar og stækkar og með þessu áframhaldi verð ég eins og hvalur fyrir jól.

Við vorum í öðrum sónarnum og allt var bara ljómandi! Litla krílið sprikaði og vex alveg eins og það á að gera. Alltaf jafn mikill léttir að heyra að allt sé eins og það á að vera. Sú sem skannaði okkur var með nema með sér svo við fengum að heyra nákvæmlega hvað hún var að gera og hvað hún leitaði eftir, sem var alveg stórskemmtilegt.

En.... það eru líklegast allir spenntir yfir að fá að vita kynið. Við verðum því miður að valda ykkur vonbrigðum þar sem litla stýrið neitaði að sýna hvaða kyn það er! Það var búið að troða naflastrengnum á milli fótanna á sér og vildi sko ekkert vera að sýna á sér klofið fyrir framan fullt af fólki! Hjúkrunnarfræðingurinn giskaði þó en það gisk er ekki nógu gott til þess að taka mark á því. Við erum alvarlega að íhuga að kaupa skönnun til þess að athuga hvort krílið vilji "flassa" okkur þá. Ég verð ekki róleg fyrr en ég hef fengið svar!

Krílið var þó ekki það feimið að það pósaði ekki á eina mynd. Hérna kemur andlitsmynd af fallegasta barni veraldar:

Image and video hosting by TinyPic

Við fengum enga kroppsmynd í þetta skiptið en það er svosem allt í lagi.

Mér líður eins og áður og held enn áfram að æla. Tókst meira að segja að æla tvisvar á meðan við biðum eftir að komast inn í skönnunina. Það var svosem ekkert mál þar sem biðstofan var full af óléttum konum og voru þær mjög samúðarfullar á svip þegar ég hljóp fram og tilbaka af klósettinu. Æj, æj, æj... það er nú meira vesenið að æla.

Ég hef ekki hringt í einn né neinn í dag eftir skönnunina þar sem ég hef, tjah, verið á hálfgerði fílu yfir að hafa ekki geta séð kynið. Ég mun allavegana hringja strax í fólk ef við ákveðum að borga fyrir eigin skönnun. Það kostar samt alveg 400 kr danskar svo ég veit ekki hversu líklegt það sé. Þolinmæði er bara eitthvað sem ég þekki ekki!

EN! Það mikilvægasta er að barnið er heilbrigt og hefur það gott í mömmumaga!

Þangað til næst,

Elísabet

Sunday, December 5, 2010

Hlakka svo til!

Ég hlakka svo til þess að hitta barnið mitt að stundum er erfitt að halda það út! Ég trúi ekki að ég þurfi að bíða í 22 vikur í viðbót! Ég er svo óþolinmóð að það hálfa væri hellingur. Get samt ekki gert annað en að bíða.

Ég fékk enn annað hormónakastið hérna heima og fór að væla yfir því að við ættum ekkert handa barninu. Aumingja Thomas þurfti, enn og aftur, að hugga mig og fór með mig í bæinn svo við gætum keypt smá dúllerí handa krílinu. Thomas er í fullri vinnu að passa upp á óléttu kærustuna sína. En hann gerir það svo vel!

Við fórum í H&M og keyptum þennan bangsagalla:

Image and video hosting by TinyPic

Ekkert smá sætur með bangsaeyrum og svo er lítill dindill á rassinum. Þetta er fyrir 2-4 mánaða svo að við getum ekki notað hann alveg strax.

Á fimmtudaginn fáum við svo að vita kynið. Ef barnið leyfir okkur það. Væri alveg týpískt ef það myndi sitja með krosslagðar fæturnar og vildi ekkert sýna. En ég mun vera fljót að hringja í línuna (pabbi, afi og amma) og segja hvort kynið það er. Og svo mun ég líka skella bloggi seinna um kvöldið, vonandi með nýjar myndir af erfingjanum.

Ég er að elda mat og ætti að fara að sinna honum. Ég er frekar seint á ferðinni þar sem ég asnaðist til þess að borða kíló af vínberjum klukkan 4 og ég hef bara verið of södd til þess að hugsa um að elda. Thomas er hinsvegar svangur... hann er alltaf svangur.

Þangað til næst,

Elísabet

Thursday, December 2, 2010

18 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Þá er ég 18 vikur í dag. Tvær vikur og svo er ég hálfnuð. Skrítið hvað tíminn flýgur. Mér fannst biðin svo löng í byrjun og hélt að ég myndi vera ólétt að eilífu. Núna er ég smám saman farin að átta mig á því að það er minna en hálft ár þangað til ég verð mamma.

Síðustu viku hef ég hægt og rólega breyst í einn hormón. Ég á alveg rosalega auðvelt með að gráta. Í gær var sýnt myndband í fréttunum af birni sem var skotinn því hann var á leiðinni inn í bæ í Slovakíu. Björninn var í leit að fæðu, vesanlingurinn. Það var alltof mikið fyrir óléttu mig og endaði með að ég vældi í nær klukkutíma. Thomas veit ekkert hvað hann á að gera þegar ég byrja. Hann horfir bara ringlaður á mig og reynir að tala um eitthvað uppörfandi. Og ég veit sjálf hversu fáránlegt það sé að gráta yfir svona lögðu... en ég ræð hreinlega ekki við mig.

Ég er svo heppin að ég fæ enn að æla. En ég kvarta ekki, því þetta er alls ekki eins slæmt og í byrjun. Það koma meira að segja dagar þar sem ég er alveg laus við uppkast.

Það er allt tilbúið fyrir jólin á þessum bæ. Ég er búin að fá Thomas til þess að setja jólatréið saman og svo er ég líka búin að skreyta. Það var allt tekið í gegn en mér finnst ég þurfa að gera það aftur bráðum. Það er ekkert grín að eiga tvo ketti og fugl. Draslarar. Allar jólagjafirnar eru komnar í hús og ætla ég að senda íslensku gjafirnar af stað á morgun. Ég er ótrúlega ánægð með það sem ég fann handa öllum.

Prófin byrja á mánudaginn... MÁNUDAGINN! Og það er byrjað á erfiðasta prófinu (fyrir mig þá) og það er skriflega prófið í dönsku. Ég mun gera mitt besta og svo vona það besta.

Aftur að þessu kæra barni. Ég finn fyrir hreyfingum á hverjum degi núna. Mismundandi eftir dögum þó. Á þriðjudaginn var allt vitlaust í maganum á mér. Barnið lét vita af sér mörgum sinnum yfir daginn. Í gær fann ég þó ekkert fyrr en um kvöldið og voru það bara eitthver lítil spörk. Í dag virðist samt vera komið stuð í krílið aftur. Þar sem að ég er búin að finna fyrir smá poti síðan ég vaknaði. Þetta er án efa eitt það skemmtilegasta sem ég hef upplifað, að finna fyrir litlu lífi inn í sér. Spörkin eru ekki enn orðin nógu sterk til þess að Thomas geti sett höndina á magan á mér og fundið fyrir þeim. Held honum finnist hann vera svolítið útundan. Það gerist vonandi bráðum svo að hann fái að vera meira með.

Ég er byrjuð að þyngjast. Sem er fínt því að eina markmiðið var að byrja ekki að þyngjast fyrr en í 5 mánuði, og ég er komin í hann núna. Ég er nú samt ekki búin að þyngjast mikið. Það er 1 kg komið af þessum hámarks 10 sem ég hef sett mér fyrir. Sem verður líklegast erfitt þar sem mér finnst ég alltaf vera með eitthvað í munninum. Ég verð sem betur fer mjög fljótt södd, get lítið borðað í einu. Ég verð samt glorhungruð klukkutíma eftir að ég er búin að borða.

Jæja, segi þetta gott í bili.

Þangað til næst,

Elísabet