Já gott fólk, aðeins 5 vikur eftir! Ég held að ég sé ekki enn búin að átta mig á að það sé svona lítið eftir. Og reyndar eru bara 3 vikur í að ég megi eiga hvenær sem er án þess að það væri eitthvað vesen (þá meina ég að barnið værir t.d. fyrirburi).
Ég er að fara með mömmu í BabySam á mánudaginn til þess að klappa saman síðustu mikilvægu hlutunum. Ég hef ekki meiri orku í að finna góð tilboð og ódýra notaða hluti. Ég er búin að útvega okkur alla þá ókeypis barnapakka sem ég hef geta fundið. Barnapakkar eru pakkar sem fyrirtæki gefa óléttum konum og nýbökuðum mæðrum með ýmsum vörum til þess að kynna þær. Erum við búin að fá tvö ókeypis snuð, ókeypis pela, heilan helling af ókeypis barnakremum og olíum, ókeypis bleyjur, ókeypis bleyjuruslatunnu, ókeypis þvottaefni og svo er ég að bíða eftir fleiri ókeypis bleyjum. Alltaf gaman að fá ókeypis!
Mér líður ágætlega, ég er samt þreytt. Ég er byrjuð að fá vökva í fæturnar og það er ég ekkert alltof sátt við. Ég drekk og drekk vatn og hef fæturnar alltaf upp en samt er eins og ekkert hjálpi. Ætli ég verði ekki að fjárfesta í teyjusokkum!
Það fer meira og meira fyrir stelpunni og er hún enn að skorða sig. Hún er búin að vera að því í nokkrar vikur og það er frekar vont. Þá sérstaklega ef ég ligg ekki þegar hún byrjar. Ég hef þó ekkert fundið fyrir því í dag og ég krossa fingur að hún sé bara búin að þessu. Fyrir þá sem vita ekki hvað það að skorða sig er þá er það að börn "troða" höfðinu niður í grindina og eru þannig þar til þau fæðast.
Ég var að búa til súkkulaðibúðing og ætla að fara að gæða mér á honum.
Þangað til næst,
Elísabet
No comments:
Post a Comment