Hún fór í pils í tilefni dagsins og mamma hennar tók nokkrar myndir:
Sunday, May 29, 2011
Emma 2 vikna!
Já litla skottan er orðin 2 vikna! Tíminn er bara búin að fljúga af stað!
Hún fór í pils í tilefni dagsins og mamma hennar tók nokkrar myndir:

Hún fór í pils í tilefni dagsins og mamma hennar tók nokkrar myndir:
Saturday, May 28, 2011
Langt síðan!
Já ég hef nú ekki verið dugleg að setja inn myndir, hvað þá taka myndir. Við upplifðum nokkra erfiða daga en bæði gærdagurinn og dagurinn í dag hafa gengið vel.
Emma átti nokkra gráttúra sem eru líklegast vegna þess að hún er svona ný og þarmarnir ekki enn þroskaðir. Við vonum að líkaminn hennar sé búinn að venjast því að vera kominn úr maganum mínum.
Hún er alveg yndisleg og er strax komin með mömmuveikina. Thomasi gengur vel með hana en ef hún verður ofsalega leið þá virkar ekkert nema komast í mömmufang.
Við fórum með hana í langa göngu niður í bæ í gær og það gekk svo vel. Við gengum upp og niður göngugötuna og kíktum í búðir og Emma steinsvaf á meðan. Litla skott! Það var þó ansi mikið drama á leiðinni til tengdó (til þess að borða hádeigismat). Um leið og Emma settist í bílstólinn skeit hún ekkert smá svo það fór í gegnum samfelluna, sokkabuxurnar, kjólinn og svo stólinn. Ofan á allt var hún sársvöng svo leiðin til tengdó var ansi erfið fyrir litla stýrið.

Þetta eru nú ekki margar myndir en þetta er það nýlegasta. Tek fleiri á morgun... vonandi.

Sunday, May 22, 2011
Myndir!
Orðin vikugömul!
Þá varð Emma litla vikugömul. Tíminn líður ansi hratt finnst mér.
Ég reyni að setja inn myndir í kvöld en ég lofa engu þar sem Emma hefur ákveðið að halda upp á afmælið með öskrum og látum :(
Kv, Elísabet og Emma öskurapi ;)
Ég reyni að setja inn myndir í kvöld en ég lofa engu þar sem Emma hefur ákveðið að halda upp á afmælið með öskrum og látum :(
Kv, Elísabet og Emma öskurapi ;)
Friday, May 20, 2011
Naflastrengurinn dottinn af
Naflastrengurinn datt af í gær. Svo núna er hún orðin stór stelpa!
Það gengur rosalega vel með litlu Emmu. Hún er róleg og auðveld... hingað til. Hún borða vel, já, hún borðar næstum því stanslaust. Held að hún eigi eftir að verða hnöttótt :)
Ætla að skella inn nokkrum myndum. Ég vildi óska að ég gæti sett inn myndir á hverjum degi en það er nóg að gera á litla heimilinu okkar :)

Emma og mamma!

Að horfa á slagsmál með pabba.

Það var ofsalega kósí

Þessi hönd er spennandi!

Og mamma líka!

Verið að skipta á sér...

Það er ekki gaman!
Hérna er svo smá myndband þar sem hún heilsar Afa, langömmu og langafa:

Wednesday, May 18, 2011
Verðandi fitubolla!
Þá er tími á smá fréttir héðan.
Þar sem að við fórum heim í gær lofuðum við að koma við með Emmu og láta vigta hana til þess að við myndum vera viss um að brjóstagjöfin gengur vel. Og viti menn! Litla Emmu klemman er búin að bæta á sig 50 grömmum.
Hún er alveg yndisleg og grætur sjaldan, nema mamma eða pabbi séu of lengi að skipta á henni. Hún vekur okkur oft á næturnar en er yfirleitt fljót að fá í ró aftur. Við erum ofsalega hamingjusamir, þreyttir foreldrar.
Ætla að henda inn fullt af myndum þar sem að ég veit að þið kíkið örugglega inn á síðuna mörgum sinnum á dag!

Thomas fann þennan skemmtilega sjómannakjól og ákvað að kaupa hann því honum fannst hann fyndinn!

Mig langaði í eina mynd án snuðs en það var ekkert alltof vinsælt.

Steinsofandi og sæl.

Roooopa!

Svo áhugasöm um hvað mamma sé að gera með þessa myndavél alltaf hreint.

Nærmynd af litla skons!

Fyrsti göngutúrinn!

Steinsofandi í þessu ferska lofti!

Nýbúið að skipta á henni og hún þurfti knús eftir allt það vesen.

Tuesday, May 17, 2011
Erum komin heim!
Þá er litla fjölskyldan komin heim. Þar sem brjóstagjöf gengur eins og í sögu þurftum við ekki að vera á sjúkrahúsinu lengur. Emma Ísey er eldhress og hraust og sýgur vel. 10 auka dagar í maganum hafa gert hana vel sterka!
Ég mun segja betur frá fæðingunni og hvernig gekk betur seinna þar sem það er mikið að segja frá. Allt í allt gekk þetta allt saman ótrúlega vel og ég er SVO fegin að vera búin!
Hérna er eitt lítið myndband af Emmu þar sem hún er rétt rúmlega dags gömul að vakna eftir lúr:

Monday, May 16, 2011
Thursday, May 5, 2011
40 vikur!
Jæja gott fólk! Þá náði ég loks settum degi og ekkert virðist vera að gerast. Klukkutími eftir af 5 maí (hér í Danmörku amk) svo ég efast að ég muni eignast stelpuna í dag... nema þetta verði eitthver svaka túrbó fæðing.
Mér líður ágætlega þrátt fyrir óþolinmæði og þreytu. Ég er byrjuð að sofa betur þrátt fyrir að ég vakni oft með verki í mjöðmum og þegar náttúran kallar. Ég náði meira að segja að leggja mig í dag í tvo klukkutíma. Það var mjööööög gott.
Eins og ég sagði áður þá virðist ekkert vera að gerast. Þó hélt ég að vatnið væri að fara fyrr í vikunni. Það er nefninlega svolítið ruglingslegt med þetta legvatn, það getur farið í einum spretti og svo getur það lekið hægt og rólega. Og vegna þess að ég hélt að vatnið væri að fara hægt og rólega fórum við Thomas því upp á fæðingardeild til öryggis. Ég fer í allskonar tjékk og viti menn... er þetta ekki bara eitthver aumingjas blöðrubólga! Og ég var í raun bara að pissa smá á mig og fann ekkert fyrir því! Vaaandræðalegt. En ég er víst ekki sú eina, það er víst algengt að maður finni ekki fyrir að maður sé að pissa þegar maður er með risa maga og blöðrubólgu. Oh jæja, fengum ekkert barn með heim þann daginn, bara pensilín.
Stelpan er enn hress og uppáhaldið hennar er ennþá að sparka í rifbeinin á mér. Ég finn að það er bráðum ekki meira pláss fyrir þennan ólátabelg!
Ég var svo hjá ljósmóður þann 3 maí og allt var eins og það á að vera. Blóðþrýstingurinn minn er búinn að vera næstum sá sami alla meðgönguna. Ég var þó með ansi mikinn vökva í fótum og höndum þegar ég var hjá henni og hún vildi að ég drykki meira vatn. Ég útskýrði að ég drykki helling að vatni og grænt te á hverju kvöldi. Þetta var bara ansi heitur dagur og þá bólgna ég bara upp. Jæja, svo potaði hún í magan á mér og stelpan er svo vel skorðuð að ljósan gat ekkert hreyft við höfðinu hennar. Dugleg stelpa! Og hún giskar á að hún sé 3650 grömm. Þannig að hún er vel búttuð en ekkert skrímsli!
Ég ætla að segja þetta gott og reyna að sofa smá. Maður veit aldrei hvenær allt fer í gang svo það er eins gott að vera úthvíldur!
Subscribe to:
Posts (Atom)