Thursday, April 28, 2011

39 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Aðeins ein vika í settan dag! Spennan er ótrúleg! Ég má varla fá smá vindverki án þess að halda að þetta séu hríðar.

Líkaminn minn keyrir á núllinu. Ég reyni að gera mitt besta hérna heima en ég verð svo fljótt þreytt og svo er ég byrjuð að fá illt í bakið við minnstu verk. Thomas hjálpar þó mikið, en það er bara erfitt að gera mér til geðs í augnablikinu þar sem ég er orðin hreingerningarbrjálæðingur.

Tilfiningarnar eru mjög blandaðar þessa dagana. Stundum er ég kúl og köld og held að ég geti bara sest bak við næsta tré og fætt stelpuna sjálf. Svo get ég verið dauðhrædd við fæðinguna og vill helst fá allt verkjastillandi sem finnst. Það kemur líka fyrir að ég er dauðhrædd við að verða mamma. Ég er hrædd um að missa barnið, ég hrædd um að ábyrgðin sé of mikil og ég er dauðhrædd um að barninu eigi ekki eftir að líka við mig. Svo hverfa allar þessar tilfiningar og mig dreymir dagdrauma um brjóstagjöf, lítil föt, göngutúra með barnavagnin og barnahlátur. Það er nú meira hvað biðin getur verið stressandi! Ég vil bara drífa þetta af!

Jæja, ég vona að stelpan láti sjá sig bráðum. Ég vil amk EKKI fara yfir tíman! Þá fyrst verð ég brjáluð.

Þangað til næst,

Elísabet

No comments:

Post a Comment