Saturday, March 26, 2011

Vaggan

Þá erum við komin með það húsgagn í hús sem hefur valdið mestum höfuðverki. Vögguna! Ástæða höfuðverksins er að vagga er jú lúksus hlutur sem okkur vantar ekkert þannig. En mig hefur bara langað í vöggu af eitthverjum ástæðum. Það hefur verið erfitt að finna vöggu sem hefur passað inn í okkar "budget" þar sem ódýrustu vöggurnar í verslunum kosta hvorki meira né minna en 1000 kr danskar.

Fann ég svo þessa glæsilegu gömlu vöggu á netinu og náði að prútta verðið frá 400 kr dönskum í 250 kr danskar! Sko mína!

Thomas er búinn að grunna vögguna en það þarf að mála hana einu sinni enn. Hér er vaggan:

Image and video hosting by TinyPic

Gæti ekki verið ánægðari með vögguna!

No comments:

Post a Comment