32 vikur! 8 vikur tilbaka! Það er kannski ekki svo mikið en mér finnst tíminn bara EKKI líða! Ég er orðin svo óþolinmóð að það hálfa væri hellingur. Mig langar að vera búin með þetta, mig langar að halda á litlu stelpunni minni og vera orðin mamma.
Þrátt fyrir að ég sé komin í fæðingarorðlof finnst mér ég hafa nóg að gera. Ég er á fullu að undirbúa barnaherbergið og er meira að segja byrjuð að þvo barnaföt. Það er kannski snemmt en mamma og maðurinn hennar gáfu okkur þvottavél og þurrkara (vávv!) og mér finnst eiginlega bara skemmtilegt að þvo.
Ég verð líka fljótt móð og þreytt svo ég tek mér tíma í húsverkin, svo þau fylla vel upp í daginn minn. Ég legg mig líka yfir daginn þar sem ég sef ekkert voðalega vel á næturna.
Við heimsóttum fæðingardeildina í gær. Vorum með fullt af öðrum verðandi foreldrum. Fengum að sjá deildina sem tekur á móti okkur og ákveður hvort konan sé almennilega í gangi eða hvort hún geti farið heim og slakað á í smá tíma. Svo sáum við sjálfa fæðingardeildina og fæðingarstofu. Þær eru mjög rúmgóðar með einu stóru rúmmi og svo rúmminu þar sem fætt er á. Það er líka allskins græjur þarna inni ef fæðinginn verður eitthvað erfið. Á stofunni er líka stærsta baðkar sem ég hef séð á ævi minni, ég er strax byrjuð að hlakka til að komast ofan í það. Ég verð líklega of þjáð til þess að gera kornhnísa í því, haha.
Það var rosalega gott að sjá deildina, og sérstaklega fyrir Thomas því það er ekkert auðvelt að rata þetta. Ég veit ekki hvort ég eigi eftir að einbeita mér af því að finna rétta hnappinn í lyftunni og svona.
Stelpan verður sífellt stærri og getur svo sannarlega sparkað í móður sína svo það er vont. En hún mun ekki geta gert það mikið lengur þar sem plássið verður minna og minna.
Ég ætla að segja þetta gott.
Þangað til næst,
Elísabet
No comments:
Post a Comment