Thursday, March 17, 2011

33 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Ég er orðin risastór. Ég hef fengið minn eigin sporbaug. Fékk nú meira áfallið þegar ég sá myndina eftir að Thomas var búin að taka. Mér líður alls ekki eins og ég sé á stærð við Led Zeppelin, en ég er það greinilega!

Ég er byrjuð að þjálfa mig í að tala íslensku við dýrin. Og ég verð að viðurkenna að það gengur ekkert alltof vel. Ég er orðin alltof föst í dönskunni og það gengur ekki ef litla skottan á að læra íslensku. Ég ætla að kaupa helling af íslenskuðum teiknimyndum og íslenskum barnageisladiskum til þess að hjálpa mér aðeins á leið. Íslenskar bækur væru heldur ekkert of vitlausar.

Næturnar verða ekkert betri og ligg ég yfirleitt í pirringskasti í rúminu. Mig langar alltaf að vekja Thomas og lýsa óánægju minni en næ að halda aftur að mér þar sem hann þarf að mæta í skóla. Brjóstsviði er einmitt minn versti óvinur í augnablikinu. Þar sem ég er með mjólkuróþol get ég ekki drukkið mjólk, tuggtöflurnar sem ég fékk í apotekinu eru ógeð og ég get kyngt þeim svo það eina sem hjálpar eru möndlur. Ég borða rosalega mikið af möndlum þessa dagana...

Annars er ég byrjuð að finna fyrir "hreiður" tilfiningunni. Mér þykir óþæginlegt að við skulum ekki vera með allt tilbúið akkúrat NÚNA. Ég er líka alltaf að taka til (alveg satt). Mér finnst óþæginlegt að hugsa til þess að ef nú eitthvað kæmi upp á að íbúðin sé öll í drasli. Það á allt að vera tilbúið... NÚNA.

Stelpan er spræk og fjörug og uppáhaldið í augnablikinu er að kýla/sparka í nýrun á mér. Og það er frekar vont. Ég reyni oft að tala við hana og segja henni að sparka frekar í hliðarnar þar sem það er ekki vont. En þar sem hún er ófætt barn þá skilur hún það ekki. O jæja.

Þangað til næst,

Elísabet

1 comment:

  1. Láttu ekki svona!
    Þú ert með heilt barn inn í þér og það tekur smá pláss ;)

    Þú lítur mjög vel út, virðist ekki vera ósofin og ert ennþá með þetta fallega "óléttu-glow".

    Njóttu þess að vera ólétt, bráðum taka svefnlausar nætur og 3 ár af bleyjuskiptum við :p

    ReplyDelete