Jæja gott fólk! Þá náði ég loks settum degi og ekkert virðist vera að gerast. Klukkutími eftir af 5 maí (hér í Danmörku amk) svo ég efast að ég muni eignast stelpuna í dag... nema þetta verði eitthver svaka túrbó fæðing.
Mér líður ágætlega þrátt fyrir óþolinmæði og þreytu. Ég er byrjuð að sofa betur þrátt fyrir að ég vakni oft með verki í mjöðmum og þegar náttúran kallar. Ég náði meira að segja að leggja mig í dag í tvo klukkutíma. Það var mjööööög gott.
Eins og ég sagði áður þá virðist ekkert vera að gerast. Þó hélt ég að vatnið væri að fara fyrr í vikunni. Það er nefninlega svolítið ruglingslegt med þetta legvatn, það getur farið í einum spretti og svo getur það lekið hægt og rólega. Og vegna þess að ég hélt að vatnið væri að fara hægt og rólega fórum við Thomas því upp á fæðingardeild til öryggis. Ég fer í allskonar tjékk og viti menn... er þetta ekki bara eitthver aumingjas blöðrubólga! Og ég var í raun bara að pissa smá á mig og fann ekkert fyrir því! Vaaandræðalegt. En ég er víst ekki sú eina, það er víst algengt að maður finni ekki fyrir að maður sé að pissa þegar maður er með risa maga og blöðrubólgu. Oh jæja, fengum ekkert barn með heim þann daginn, bara pensilín.
Stelpan er enn hress og uppáhaldið hennar er ennþá að sparka í rifbeinin á mér. Ég finn að það er bráðum ekki meira pláss fyrir þennan ólátabelg!
Ég var svo hjá ljósmóður þann 3 maí og allt var eins og það á að vera. Blóðþrýstingurinn minn er búinn að vera næstum sá sami alla meðgönguna. Ég var þó með ansi mikinn vökva í fótum og höndum þegar ég var hjá henni og hún vildi að ég drykki meira vatn. Ég útskýrði að ég drykki helling að vatni og grænt te á hverju kvöldi. Þetta var bara ansi heitur dagur og þá bólgna ég bara upp. Jæja, svo potaði hún í magan á mér og stelpan er svo vel skorðuð að ljósan gat ekkert hreyft við höfðinu hennar. Dugleg stelpa! Og hún giskar á að hún sé 3650 grömm. Þannig að hún er vel búttuð en ekkert skrímsli!
Ég ætla að segja þetta gott og reyna að sofa smá. Maður veit aldrei hvenær allt fer í gang svo það er eins gott að vera úthvíldur!
Jæja, hvað er að frétta?
ReplyDelete