Í dag færi ég ykkur mynd OG myndband! Myndin er tekin í dag þar sem ég er 30 vikur og myndbandið er tekið upp þegar ég er 29 vikur á leið. Ástæða myndbandsins er að Thomas fer oft að dansa þegar síminn hans hringir, mér finnst það svo skemmtilegt að ég vildi fá að taka það upp... hann vildi ekki vera einn svo ég varð að dansa með.
Ég var hjá ljósmóðurinni í gær og allt var eins og það átti að vera. Hún þreifaði á mér og giskaði á að stelpan er 1400 g, sem er ekkert smá. Finnst hún hafa vera 1 g í gær. Svo var enginn sykur í þvaginu mínu svo ég þarf ekki að taka prófið um hvort ég sé með meðgöngusykursýki. Það er víst eitthver viðbjóður þar sem maður þarf að drekka eitthvern ofursætan drykk og hanga hjá lækninum í tvo tíma. Svo, hjúkk, að ég þurfi þess ekki!!!
Stelpan hefur minna og minna pláss og er ég farin að finna fyrir minnstu hreyfinum. Henni finnst voða gott að stinga fæti undir rifbeinin á mér sem ég er ekkert alltof hrifin af. Fer eftir hvort ég liggi eða sitji. Ef ég sit þá "grafa" ég hana undan rifbeinunum. Það tekur smá tíma, en virkar!
Ég er alltaf svöng og er byrjuð að vera alveg vitlaus í súkkulaði. Þetta skriftir á milli daga og ég vona að ég fái æði fyrir eitthverju hollara næst!
Annars líður mér bara vel og ég er farin að venjast því að vera ólétt. Finnst eiginlega hálf skrítið að hugsa um mig ekki ólétta þar sem mér finnst óléttan vera orðin svo stór hluti af mér. Samt sem áður hlakka ég til að fá hana og fá að hafa líkamann minn í friði.
Þangað til næst,
Elísabet
No comments:
Post a Comment