Thursday, February 3, 2011

27 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Mynd vikunnar er tja, hálf nakin. En ég verð bara að muna að taka nokkrar myndir af naktri bumbu áður hún afmyndast af slitförum. Svo fann ég heldur enginn flott föt að vera í.

Ég er orðin ógnvaldur eldhússins. Ég fer þar um eins og óveður og borða allt sem verður á vegi mínum. Matarlistin virðist vera endalaus. Enda eru auka kílóin orðin 6 talsins. En ég veit eiginlega ekki hvað ég á að gera, vera svöng? HELD NÚ EKKI! Ég reyni að borða eins hollt og ég get en ég virðist fá langanir sem erfitt er að ráða við. Ég t.d. varð að fá súkkulaði möffins í dag. Og því fékk ég súkkulaði möffins.

Stelpan virðist verða kraftmeiri með hverjum deginum. Hún vakti mig ekki fyrir svo löngu með ansi sterku sparki á mjög óþæginlegan stað. Hún sparkaði mjög neðarlega til vinstri og var það eiginlega bara vont. Ég þurfti að standa upp til þess að fá hana til þess að færa sig.

Ég er byrjuð að geta vakið hana. Það er mikið auðveldara að pota í hana nú þegar hún er orðin svona stór. Ég pota yfirleitt svona þrisvar og svo fæ ég mjög pirrað spark á móti. Kemur sér vel þegar ég vil fullvissa mig um að hún hafi það gott þarna inni. Eins og ég hef sagt áður þá eru "strokurnar" í uppáhaldi. Ég elska að finna tær eða rass renna frá hlið til hlið. Mér finnst ég næstum geta gripið í hana!

Svo vill ég bjóða brjóstsviðan og krampana í fótunum velkomna í óléttu-óþægindar-hópinn. Ég hafði ekki hugmynd um að brjóstsviði gæti verið svona illur. Sem betur fer á ég tuggtöflur sem að milda hann nokkuð fljótt. Kramparnir í fótunum eru ekki eins slæmir, koma bara þegar ég ligg upp í rúmmi. Það er samt kjánalegt þegar ég fæ þá þegar ég er á milli svefns og vöku því þá virðist ég fara að væla. Eins og ég átti mig ekki alveg strax hvað sé að gerast. Aumingja Thomas fer alveg í fár. En ég væli ekki ef ég er vakandi, því ég veit að þeir hverfa brátt.

Jæja, ég ætla að fara að finna mér eitthvað að éta... aftur!

Þangað til næst,

Elísabet sem er að breytast í fíl.

No comments:

Post a Comment