Thursday, February 17, 2011

29 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Það er alveg fáránlegt að það skuli bara vera 11 vikur eftir. Og það er enn fáránlegra að eftir viku er ég komin 30 vikur á leið. Mér finnst við vera alltof sein að öllu þrátt fyrir að við eigum öll húsgögn (fyrir utan vöggu) sem okkur vantar. Við erum komin með skiptiborð, rimlarúm, kommóðu, baðkar og svalabarnavagn svo að það vantar ekkert nema smotterí.

Maginn er orðin ansi stór og er svo sannarlega farinn að vera fyrir mér. Mér finnst óþæginlegt að beygja mig niður þar sem maginn klemmist svo af því. Ég get ekki beygt mig með hnjánum því þá fæ ég illt í grindina. Svo ég reyni helst ekki að missa neitt á gólfið. Ég get enn sótt hlutina en það mun ekki líða langur tími þar til ég mun kalla á Thomas þegar eitthvað dettur á gólfið.

Mér finnst óléttan vera orðin svo stór hluti af mér að ég er líka ólétt í öllum draumunum mínum. Þó hefur mig dreymt að stelpan sé fædd og allt hafi gengið vel. Einu sinni dreymdi mig samt að hún hafi verið stærri en ég og ég átti í mesta barsli við það að skifta á henni. Meira ruglið.

Hún er ekki þessi ninja eins og önnur börn virðast vera. Þó er hún mjög fjörug og mér finnst ég finna meira og meira fyrir henni með hverjum deginum. Það er eins og hún sé orðin það stór að ég finni fyrir minnstu hreyfingum. En ég er alveg viss um að hún verði afskaplega rólegt barn eins og mamma hennar var. Ég vona það allavegana þar sem pabbi hennar var víst algjör villingur.

Annars gengur bara vel hérna hjá okkur.

Þangað til næst,

Elísabet.

No comments:

Post a Comment