Þá finnst mér tími til að ég skrifi eina litla færslu. Á morgun erum við Thomas að fara á fyrsta óléttunámskeiðið af þremur. Þetta eru ókeypis námskeið sem við ætlum auðvitað að nýta okkur. Í fyrsta námskeiðinu verður talað um óléttuna, hvað maður getur búist við og hvað sé framundan. Og í lok námskeiðinsins fara konurnar fram og karlarnir fá að tala við hjúkkuna einir. Þá geta þeir fengið svar við spurningum eins og "af hverju grætur konan mín við það eitt að horfa á auglýsingar?" og "af hverju getur konan mín ekki talað um annað en smábörn?". Thomas verður örugglega ánægður með það! Í öðru og þriðja námskeiðinu verður talað um fæðinguna, gerðar verða öndunnar æfingar og talað verðum um fyrstu dagana með krílið. Alveg frábært!
Er ég líka komin með fyrsta tíman hjá ljósmóðurinni. Ég veit ekki alveg við hverju ég á að búast í þeim tíma. Veit að hún mun mæla blóðþrýsting, kannski taka blóðprufur og svo verð ég vigtuð. Hérna í Danmörku er einnig hægt að fá að komast á ókeypis námskeið fyrir feitar óléttar konur. Ég ætla að reyna fá ljósuna mína til þess að koma mér í það. Það er þó ekki víst þar sem ég uppfylli ekki allar kröfurnar, þar sem ég er ekki nógu feit. Mig langar samt svo að komast með því það eru göngutúrar, ókeypis meðgöngusund, ég fæ ókeypis matarplan og svo verða einnig nokkrir ókeypis tímar í líkamsræktarstöð. Mig langar bara í allt sem er ókeypis! Vonum að það sé nóg pláss í hópunum svo þeir hleypi einni svona hálf feitri með.
Hjá ljósmóðurinni verð ég líka sett í meðgönguhóp, ef mig langar. Þá get ég hitt konur sem eru komnar sirka jafn langt og ég og spjallað um allt mögulegt. Ég hef ekki enn ákveðið hvort mig langi það. Auðvitað væri gaman að eignast vinkonur sem eru að ganga í gengnum það sama og ég, en ég er bara eitthvað svo óákveðin. Seinna meir verð ég sett í mömmuhóp, þegar ég er búin að eiga. Þá getur maður hitt fleiri nýbakaðar mæður með börnin í barneignarfríinu. Mig langar það alveg pottþétt. Veit bara ekki hvað maður á að gera með fullt af óléttum konum... bera saman bumbur?
En þangað til næst,
Elísabet
No comments:
Post a Comment