15 vikur í dag. Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, en samt svo hægt. Og mér finnst ég orðin risastór. Finnst ekki konurnar sem ég þekki hafa verið svona stórar svona snemma. En þetta er víst voða mismunandi, nema ég sé með risastóran krakka í maganum. Ég hef ekkert þyngst hingað til sem ég er mjög, mjög, mjög ánægð með. Þar sem ég er með nokkur extra kíló þá þarf ég ekki að þyngast um meira en 10 kíló á meðgöngunni. Markmiðið hefur verið að byrja ekki að þyngjast fyrr en ég er komin í fimmta mánuð.
Annars er ég að detta í jólaskapið, langar svo að byrja að skreyta en ég held aftur að mér. Er byrjuð að þrífa inn í skápa og svoleiðis svo ég þrufi þess ekki þegar ég fer að læra fyrir próf. Við erum einmitt komin með dagsetningarnar... loksins!
Við Thomas erum núna búin að vera saman í 2 ár. Til þess að fagna ákváðum við að fara niður í bæ og rölta og fengum okkur svo pitsusneið og gos. Við skruppum inn í H&M og kíktum á ungbarnaföt. Það var alveg ótrúlega skemmtilegt að sjá Thomas bregðast við öllum litlu sokkunum og bolunum. Hann er alveg æstur í að kaupa galla með bangsaeyrum. Við keyptum ekkert í þessari ferð, enda aðeins of snemmt og við viljum líka fá að vita kynið áður en við förum að spreða. En það að sjá ungbarnafötin gerði Thomas enn spenntari. Hann hefur engan áhuga á því að ég sé ólétt, honum hlakkar bara til þess að barnið komi í heiminn og hann geti farið að taka almennilega þátt.
Jæja, ætla að fara elda kvöldmatinn fyrir glorhungraðan Thomas. Hann verður alltaf svo leiður þegar hann er svangur, haha.
Þangað til næst,
Elísabet
No comments:
Post a Comment