Saturday, May 28, 2011

Langt síðan!

Já ég hef nú ekki verið dugleg að setja inn myndir, hvað þá taka myndir. Við upplifðum nokkra erfiða daga en bæði gærdagurinn og dagurinn í dag hafa gengið vel.

Emma átti nokkra gráttúra sem eru líklegast vegna þess að hún er svona ný og þarmarnir ekki enn þroskaðir. Við vonum að líkaminn hennar sé búinn að venjast því að vera kominn úr maganum mínum.

Hún er alveg yndisleg og er strax komin með mömmuveikina. Thomasi gengur vel með hana en ef hún verður ofsalega leið þá virkar ekkert nema komast í mömmufang.

Við fórum með hana í langa göngu niður í bæ í gær og það gekk svo vel. Við gengum upp og niður göngugötuna og kíktum í búðir og Emma steinsvaf á meðan. Litla skott! Það var þó ansi mikið drama á leiðinni til tengdó (til þess að borða hádeigismat). Um leið og Emma settist í bílstólinn skeit hún ekkert smá svo það fór í gegnum samfelluna, sokkabuxurnar, kjólinn og svo stólinn. Ofan á allt var hún sársvöng svo leiðin til tengdó var ansi erfið fyrir litla stýrið.

Image and video hosting by TinyPic

Image and video hosting by TinyPic

Image and video hosting by TinyPic

Þetta eru nú ekki margar myndir en þetta er það nýlegasta. Tek fleiri á morgun... vonandi.

No comments:

Post a Comment