Wednesday, May 18, 2011

Verðandi fitubolla!

Þá er tími á smá fréttir héðan.

Þar sem að við fórum heim í gær lofuðum við að koma við með Emmu og láta vigta hana til þess að við myndum vera viss um að brjóstagjöfin gengur vel. Og viti menn! Litla Emmu klemman er búin að bæta á sig 50 grömmum.

Hún er alveg yndisleg og grætur sjaldan, nema mamma eða pabbi séu of lengi að skipta á henni. Hún vekur okkur oft á næturnar en er yfirleitt fljót að fá í ró aftur. Við erum ofsalega hamingjusamir, þreyttir foreldrar.

Ætla að henda inn fullt af myndum þar sem að ég veit að þið kíkið örugglega inn á síðuna mörgum sinnum á dag!

Image and video hosting by TinyPic

Thomas fann þennan skemmtilega sjómannakjól og ákvað að kaupa hann því honum fannst hann fyndinn!

Image and video hosting by TinyPic

Mig langaði í eina mynd án snuðs en það var ekkert alltof vinsælt.

Image and video hosting by TinyPic

Steinsofandi og sæl.

Image and video hosting by TinyPic

Roooopa!

Image and video hosting by TinyPic

Svo áhugasöm um hvað mamma sé að gera með þessa myndavél alltaf hreint.

Image and video hosting by TinyPic

Nærmynd af litla skons!

Image and video hosting by TinyPic

Fyrsti göngutúrinn!

Image and video hosting by TinyPic

Steinsofandi í þessu ferska lofti!

Image and video hosting by TinyPic

Nýbúið að skipta á henni og hún þurfti knús eftir allt það vesen.

No comments:

Post a Comment