Monday, January 3, 2011

Enn önnur smá færslan.

Ég er með nokkur nýársheiti og þau eru þessi:

Þegja ef ég hef ekki eitthvað jákvætt og uppbyggjandi að segja.

Þurrka oftar af.

Hætta að drekka svona mikið gos!


Það að léttast um 10 kíló kemur á næsta ári, eða næsta sumar. Ég get nú voða lítið lést í augnablikinu og mun þyngjast hvort sem mig langar það eða ekki.

Jólin og áramótin hafa verið mjög fín í ár og höfum við fengið fullt af góðum mat. Thomas er búinn að vera eitt stórt bros í gegnum hátíðarnar, en það er líklega vegna alls kjötsins sem hann hefur fengið.

Við fengum líka frábærar gjafir og get ég sagt sátt að við fengum ekkert sem við getum ekki notað. Og það er alltaf frábært.

Ein skemmtileg gjöf sem ég fékk frá Thomas var þessi húfa:

Image and video hosting by TinyPic

Nú munum við barnið passa svona rosalega vel saman. Bangsamamma og bangsabarn!

Áramótunum eyddum við hjá bróður Thomas og konu hans og börnum og skálaði ég nýja árinu inn með barnakampavíni. Það var jarðaberjabragð af því og ég er ekki frá því að mér finnist það betra en venjulegt kampavín.

En það gengur allt sinn vanagang í maganum á mér. Það er svaka stuð á morgnanna og kvöldin þegar ég ligg og er afslöppuð. Ég er byrjuð að finna fyrir barninu fyrir ofan nafla núna og segir það hversu mikið pláss barnið er byrjað að taka. Mig kítlar alveg svakalega þegar barnið sparkar í hliðarnar á maganum mínum. Stundum svo mikið að ég verð að pota í það eða skipta um stellingu til þess að það hætti. Er ég ekki ein um það, mörgum óléttum konum finnst barnið kítla frá viku 20-25. Þegar spörkin verða sterkari þá kítlar þau ekki.

Mér líður eins og venjulega og get ekki kvartað. Ég hlakka óstjórnlega til þess að vera búin í prófunum og byrja nýja önn í fjarnámi!

Þangað til næst,

Elísabet

No comments:

Post a Comment