Thursday, January 6, 2011

23 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Ég held að það sé eitthvað að myndavélinni minni. Mér finnst ég allavegana myndast mikið stærri en mér líður. Ég fæ hálfgert áfall í hvert skipti sem við tökum bumbumynd, "er ég virkilega svona stór?". Það er allavegana jákvætt að ég skuli stækka, ég á víst að gera það.

Ég hef ekki þorað á vigtina síðan um jólin og ætla ekki að gera það fyrr en ég er búin með jólanammið sem við eigum eftir. Ég get ekki borðað það ef að ég kemst að því að ég sé búin að bæta of miklu á mig.

Barnið er byrjað að sparka almennilega, og sérstaklega á kvöldin og næturnar. Það getur meira að segja verið svo fjörugt að það heldur fyrir mér vöku á næturnar. Krílið er líka afskaplega duglegt að taka nokkur vel völd danspor akkúrat á þvagblöðrunni minni. Það er ótrúlega óþæginlegt og sérstaklega þegar ég vaaaar að pissa um hánótt, því þá þarf ég að pissa strax aftur. Ég er byrjuð að eiga svolítið erfitt að sofna, en þegar ég sofna sef ég kannski í 2-3 tíma í einu. Ég vakna við að þurfa annað hvort að pissa eða þá að ég geti ekki legið almennilega. Einnig hafa fætur mínir tekið upp á að krampa á næturnar... húrra fyrir óléttu!

Þrátt fyrir allt sem angrar mig finnst mér ótrúlega spennandi að finna fyrir barninu. Sérstaklega núna þegar ég finn svo sterkt fyrir því. Það er voða spennandi að vera ófrískur, en ég hef því miður ekki þolinmæðina í það. Ég get ekki beðið eftir að ljúka þessu af svo að ég geti byrjað nýtt líf með litlu dóttur minni eða litla son minn.

Ég hlakka líka til þess að geta drukkið vatn án þess að kasta upp. Róleg, róleg, ég drekk ekki bara gos. Ég drekk vatn með gosi í, sko, bubblurnar. Það gengur mjög vel en það verður að vera vel kallt.

Jæja, ég segi þetta gott í bili. Verð víst að fara læra fyrir enskupróf á morgun, sem ég mun að sjálfsögðu rúlla upp!

Þangað til næst,
Elísabet

No comments:

Post a Comment