Thursday, January 20, 2011

25 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Image and video hosting by TinyPic

Í dag færi ég ykkur tvær bumbumyndir. Ég ætlaði að sýna bera bumbu en ég fékk þennan fína kjól í dag og neita að fara úr honum! Mér finnst ég vera orðin alvöru ólétt núna. Fólk glápir á mig hvert sem ég fer og konur brosa til mín. Mér finnst eins og ég sé fræg!

En aðal sagan er að við Thomas fórum í auka skönnun í dag þar sem að ég "frk. óþolinmóð" fékk kast yfir því að þurfa að bíða til maí til þess að vita kynið. Auðvitað gaf Thomas undan og við bókuðum tíma.

Ég vaknaði um 3 leitið í nótt og gat ekki sofið, vakti Thomas sem þurfti að fikta í hárinu á mér þar til ég sofnaði aftur, svo spennt var ég. Eldsnemma í morgun vaknaði ég svo aftur, borðaði rúgbrauð með agúrku og lagði mig svo aftur. Var ég svo heppin að æla yfir sængina mína og þurfti að skipta um á rúminu í stað þess að sofa. En það var allt í lagi, ekkert átti að eyðileggja daginn í dag því ég var að fara að sjá krílið mitt aftur.

Lögðum við svo af stað um hádeigið og var ég að deyja úr spennu. Ferðin átti að taka 30 mínútur og ég þurfti að pissa þegar við vorum búin að keyra í 5 mínútur... ég sagði samt ekkert því ég var svo hrædd um að við myndum koma of seint ef við myndum stoppa. Þegar við vorum loksins mætt á svæðið verkjaði mig ég þurfti svo mikið að pissa.

Jæja, við þurftum varla að bíða neitt og áður en ég veit af ligg ég með gel á maganum. Sjáum við litla barnið okkar hreyfa sig á fullu. Ótrúlega gaman að finna fyrir spörkunum og sjá þau á sama tíma. Og það leyndi sér ekki að þetta er lítil stelpa sem felur sig þarna í maganum á mér! Ég verð að viðurkenna að ég hef haft það á tilfiningunni en ég þorði alls ekki að treysta á þá tilfiningu svo ég hef eiginlega ekkert talað um það. En það var dásamlegt að vita loksins hvort við eigum að segja "hann" eða "hún". Fengum við nokkrar myndir í 3D sem ég hætti ekki að glápa á alla leiðina heim. Mér leið alveg merkilega eftir að heyra kynið. Ég var/er hálf feimin við barnið, finnst ég þurfa að kynnast því svolítið upp á nýtt. En ótrúlega spennt og ánægð!

Hér koma myndir af fallegasta barni heims í 3D. Thomas segir að barnið líkist leðjuskrímsli þar sem 3D myndir eru þannig... en hann er bara kjáni.

Image and video hosting by TinyPic

Image and video hosting by TinyPic

Ég veit ekki hverjum barnið líkist, þar sem ég hef aldrei verið góð í þeim leik en fallegt er það!

Þangað til næst,

Elísabet með STELPU í maganum.

No comments:

Post a Comment