Það er nú ekki að gerast mikið nema það að ég held... HELD að ég hafi fundið fyrir krílinu í morgun. Ég ætla ekki að fullyrða neitt því margir segja að maður geti alveg ímyndað sér eitthvað. En þetta var eins það væri bankað létt inni í maganum á mér. Ég lá alveg kyrr og mér fannst þessi "bönk" standa yfir í sirka mínútu.
En annars er ógleðin enn að angra mig. Ég kasta ekki upp eins oft og áður en mér finnst ég þurfa að einbeita mér til þess að halda niðri mat. Ég er orðin frekar matvönd sem ég hef aldrei verið og borða mest af tómötum og brauði með túnfisksallati í augnablikinu. Mig langar samt svo rosalega í hamborgara og franskar og ætla að leyfa mér það í kvöld þar sem það er nú einu sinni helgi!
En þetta var svosum allt sem ég hafði að segja!
Elísabet
No comments:
Post a Comment