Ég komst að því að ég væri ólétt þegar ég var rétt rúmar 4 vikur á leið. Ég var með spenningar í móðulífinu og hélt þess vegna að sá tíma mánaðarins væri rétt fyrir hornið. Ég hringdi í mömmu til þess að spjalla og sagði henni svo frá því að ég væri komin aðeins framyfir og hún var viss um að ég væri ófrísk. Ég tók hana ekkert alvarlega þar sem hún hefur verið alveg viss um að ég væri ólétt oft áður. Ég ákveð að taka próf bara til þess að vera alveg viss og kemur í ljós dauf lína sem gefur til kynna að ég sé ólétt. Það var samt svolítið erfitt að taka mark á prófinu þar sem það að verða ólétt var svo óraunverulegt. Næsta dag tek ég svo tvö önnur próf og eru þau mjög augljóslega jákvæð. Ég byrja að skjálfa og átta mig á því að ég sé í alvöru ólétt. Thomas var samt ekki alveg sannfærður og byrjar að lesa allar leiðbeiningarnar og umbúðirnar! Held hann sé ekki enn búin að átta sig alveg á þessu. En við vorum rosalega glöð.
Þegar ég var komin 7 vikur og 3 daga fer ég til kynsjúkdómalæknis í krabbameinsskoðun. Þessi tími hafði verið löngu pantaður áður en ég komst að því að ég væri ófrísk. Eftir skoðunina segir læknirinn að hún muni skanna mig og við munum sjá barnið. Ég fékk nett móðursýkiskast því ég vildi SKO EKKI sjá barnið í fyrsta skipti þegar Thomas var ekki með. Hún hló bara að mér og sagði að þá þyrfti ég að horfa í hina áttina svo að ég sæi ekki á skjáinn. En auðvitað gat ég það ekki. Á skjánum mátti sjá 12 mm langt kríli með hjarta sem sló sterkt og smá stubba fætur og hendur. Það merkilegasta sem ég hef upplifað. Ég fékk mynd af sílinu fyrir Thomas, sem er reyndar ekkert eins spennandi þegar maður sér ekki hjartað slá. Mér finnst sílið líkjast formúli 1 bíl á myndinni. En ég hljólaði heim með stórt bros á vör með mynd af krílinu í vasanum.
Mér byrjaði að vera óglatt þegar ég var 7 vikur, ældi nær öllu þar til fyrir tveimur dögum. Og jafnvel þó svo að það séu bara tveir dagar síðan þá er ég eiginlega búin að gleyma hvernig mér leið. Ég veit allavegana að mér leið illa. Léttist um nokkur kíló og fékk nett panik einstaka sinnum þar sem ég hélt ég væri að þorna upp... sem ég var ekki.
Ég ætla að segja þetta gott í bili. Verð vonandi dugleg að muna að skrifa færslur og taka bumbumyndir. En hér koma allavegana tvær:
8 vikur og 4 dagar:
11 vikur:
Víí víí! Þetta er svo gaman. :) Ég hef einmitt líka heyrt það frá konum sem fá ómskoðun svona snemma að krílið líti út eins og gúmmíbangsi. :D
ReplyDelete