Tuesday, October 26, 2010

12+1

Image and video hosting by TinyPic

Jæja! Svo náði ég þessum langþráðu 12 vikum í gær. Fyrir þá sem ekki vita þá er stærsta hættan á fóstursláti yfirstaðin. Ég á samt ekki eftir að slaka á fyrr en eftir hnakkaþykktarmælinguna. Þá fáum við að sjá litla krílið og vonandi heyra að allt sé eins og það á að vera. Við eigum tíma núna á fimmtudaginn, 28/10 og erum að kafna úr spenning. Thomas hefur ekki séð sílið "live" ennþá og ég held að eftir að hafa séð það eigi hann eftir að átta sig betur á þessu.

En annars líður mér bara vel. Ógleðin er alveg að hverfa þó svo að ég finni fyrir smá óþægindum snemma á morgnana og seint á kvöldin. Það er samt ekkert að kvarta yfir miða við hvernig ég hafði það. Ég er byrjuð að fá smá stingi í mjaðmirnar og vona að það sé bara afþví ég sofi vitlaust en ekki grindarverkir. Ætla að spyrja hjúkkuna betur út í það á fimmtudaginn.

Maginn á mér stækkar aðeins og finnst mér ég vera komin með svona smá "skúffu" á magan. Þar sem þyndin er alveg neðst. Frekar kjánalegt!

Við Thomas erum að byrja á fullu í prófundirbúningi. Ég hef tekið þá ákvörðun að taka næstu önn á fjarnámi svo ég þurfi ekki að hjóla fram og tilbaka í skólann, sérstaklega á vetrartímanum. Það verður líka ágætt því þá er ég meira heima og get farið að undirbúa þegar sá tími kemur. Ég næ líklegast að eiga mánuði fyrir prófin og þá mun ég bara taka krílið með mér!

Þangað til næst!

Elísabet

No comments:

Post a Comment