Thursday, December 16, 2010

20 vikur!

Image and video hosting by TinyPic

Þá er ég hálfnuð! Húrra, húrra, húúúúrraaaaa! Allt í einu er eins og tíminn hafi flogið af stað, en samt finnst mér ótrúlega ósanngjarnt að ég þurfi að bíða í 20 vikur í viðbót.

Ég var hjá lækninum mínum um daginn vegna þess hversu illt mér hefur verið í mjöðmunum. Og síðustu daga hefur mér verið svo illt í rófubeininu að ég gæti grátið þegar ég stend upp eða sest niður. Læknirinn sagði að ég væri því miður með gringarglyðnun. Sem er ömurlegast af öllu ömurlega en ágætt að það sé komið á hreint svo ég geti gert mitt besta til þess að halda mér í gangi.

Að vera með grindarglyðnun er mjög sársaukafullt en ég get haldið þessu ágætlega í skefjum með að passa að reyna ekki of mikið á mig, má ekki ryksuga og svo geri ég sérstakar æfingar fyrir grindina. Ég á að fara til sjúkraþjálfara en við verðum að skoða hvort það sé efni á því. Ég er mjög jákvæð og ætla að fara mjög vel með mig næstu 20 vikurnar svo að ég verði nú ekki rúmliggjandi.

Barnið er ótrúlega fjörugt og Thomas búin að finna fyrir potunum nokkrum sinnum núna. Ég er enn að venjast hversu mikla orku krílið hefur þar sem það getur sparkað og potað í nokkrar mínútur í einu núna. Mjög óheppinlegt að vera í miðju alvarlegu samtali þegar barnið byrjar... ég get ekki annað en brosið þegar það fer í gang. Mér finnst þetta ennþá svo fyndið.

Við Thomas erum búin í prófum í bili. Það eru nokkur eftir í janúar en akkúrat núna erum við komin í jólafrí og ætlum ekki að kíkja í bók fyrr en eftir 24 desember. Það hefur gengið vel hingað til en engar einkunnir eru komnar í hús. Við bíðum spennt eftir að sjá hvor okkar fær hærri einkunnir.

Það er allt orðið rosalega jólalegt á þessum bæ og á kvöldin finnst mér ekkert betra en að liggja í sófanum, kela við kisu á meðan það er kveikt á fullt af kertum og jólaljósum.

Þangað til næst,

Elísabet

No comments:

Post a Comment