Monday, July 4, 2011

Fleiri myndir og smá fréttir!

Emma er algjört æði! Ég gæti knúsað og kreist hana allan liðlangan daginn! Hún hefur verið svo góð í gær og dag, ekkert vesen á maganum hennar! Hún hefur sofið 5-6 tíma í einu á nóttinni og svo fengið að drekka og skipt á bleyju og þar á eftir sefur hún í 3 tíma! Við erum svo sannarlega úthvíldir foreldrar!

Við erum byrjuð að venja hana á að sofa úti í vagni og það gengur mjög vel. Í gær var hún úti í 50 mínútur. Ég þurfti þó að rétta henni snuðið nokkrum sinnum, allt fer í panik þegar hún missir snuðið. Í dag svaf hún í næstum 3 tíma! 3 tíma!!! Í byrjun var svolítið vesen, missti snuðið nokkrum sinnum og svo þufti ég að vagga henni, en hún svaf í svona 10-15 mínútur í einu. Svo skipti ég á einni bleyju og þar á eftir svaf hún í klukkutíma án þess að vakna! KLUKKUTÍMA! Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við sjálfan mig. Mér leiddist bara.

Nokkrar myndir af sætustu stelpunni sem hlakkar til að fá heimsókn frá Íslandi:

Liggja með pabba er uppáhalds:
Image and video hosting by TinyPic

Óróinn fyrir ofan skiptiborðið er æði. Hann fær bros í hvert skipti! Mamma og pabbi þurfa hinsvegar að vinna fyrir brosum!
Image and video hosting by TinyPic

Veit ekki alveg hvaða svipur þetta er:
Image and video hosting by TinyPic

Það er svo gaman á skiptiborðinu:
Image and video hosting by TinyPic

No comments:

Post a Comment