Saturday, June 11, 2011

Byrjuð að leika!

Emma hefur verið ótrúlega vakandi frá fæðingu og núna er hún byrjuð að finnast gaman að leika. Hún er á svona leikteppi sem er með alskonar dinglandi dýrum á og það er svo gaman að horfa á þau! Þó er hún enn of lítil til þess að liggja þar í langan tíma þar sem þetta getur orðið of mikið fyrir hana. En nokkrar mínútur hér og þar er bara sport!

Það gengur mjög vel með hana núna. Hún á þó enn erfitt með að prumpa og kúka en ég er búin að læra nokkrar aðferðir sem hjálpa henni. Við hjólum með fótunum hennar, pressum hnjánum upp að maga í nokkrar sekúndur og svo nuddum við mallan. Og hún prumpar og prumpar þegar við gerum þetta! Þannig að gráttúrarnir sem tóku nokkra klukkutíma taka núna mesta lagi klukkutíma. Bara æðislegt að geta hjálpað litla krílinu sínu!

En mér finnst þið eiga skilið nokkrar myndir.

Klemman á leikteppinu:
Image and video hosting by TinyPic

Image and video hosting by TinyPic

Ofsalega þreytt af að spjalla við mömmu sína:
Image and video hosting by TinyPic

Ég er byrjuð að bera hana í sjali og þar steinsefur hún. Sem er frábært þegar hún er óróleg. Hún elskar að liggja í sjalinu hjá mér og það er frábært því að hún vill helst láta halda á sér og þá er erfitt að taka til hérna heima. En í sjalinu er ég með tvær lausar hendur og get bara næstum allt!

Og já þetta er sérstakt sjal sem er gert til þess að bera börn og ég fékk leiðbeiningar með um hvernig ég ætti að binda það. Þetta er rosalega hippalegt og kósí!

Emma í sjalinu:

Image and video hosting by TinyPic

Image and video hosting by TinyPic

Emmu finnst lang best að sofa í rúminu okkar Thomasar. Ég reyni þó að láta hana sofa í vöggunni smá þar sem ég sef best þegar hún gerir það. Það er þó ómögulegt að fá hana til þess að sofa þar þegar það er bjart úti. Svo klukkan 5 á slaginu fær hún að koma upp í til okkar. Og hérna náði ég mynd af þeim Thomas að kúra:

Image and video hosting by TinyPic

Þangað til næst,

Elísabet og Emma

No comments:

Post a Comment